Þrír staðir þar sem góð stefna tapast
Innleiðingin verður þá að röð ákvarðana um hvernig fyrirtækið á að vinna, teknar af þeim sem stilla kerfið en ekki þeim sem bera ábyrgð á rekstrinum.
Stjórnendur sjá misræmi í upplýsingum frá ólíkum kerfum, mánaðarlokin kalla á handavinnu og gervigreind gefur ólík svör við sömu spurningum eftir samhengi.
Hver aðili við borðið ber ábyrgð á sínum hluta: leyfum, innleiðingu eða rekstri. Enginn hefur það hlutverk að gæta heildarinnar fyrir hönd starfseminnar.
Ekkert af þessu er tæknivandi. Þetta eru ákvarðanir sem þarf að taka áður en tæknin kemur til og það er vinnan sem ég sinni.
Kannist þið við stöðuna?
Þetta eru algengar aðstæður þar sem óháð sýn Hugdrifs skilar mestu.
Kröfurnar byggja oft á núverandi kerfi frekar en þörfum starfseminnar og ákvörðunin verður ekki aftur tekin eftir undirskrift.
Kerfisval, útboð og rýni Sameining eða samruniHver eining vinnur á sinn hátt og enginn hefur ákveðið hvaða verklag verður staðallinn.
Heildarskipulag og verkferli Stjórnin spyr um gervigreindTilraunir lofa góðu í kynningu, en óljóst er hvar á að beita gervigreind, í hvaða tilgangi og hvað er tilbúið fyrir rekstur.
Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindreka Verkefni sem skilar ekkiTímalínan lengist, kostnaðurinn vex og tæknilegu skýringarnar eru hættar að sannfæra.
Kerfisval, útboð og rýni Gögnin stemma ekkiSami hluturinn er skráður á ólíka vegu í ólíkum kerfum og enginn veit hvaða útgáfa er rétt.
Gögn og upplýsingaarkitektúr Þörf fyrir reyndan arkitekt, en ekki í fullu starfiStórar ákvarðanir koma reglulega upp, en umfangið réttlætir ekki fastráðinn yfirarkitekt.
Yfirarkitekt í hlutastarfiSamstarfsform
Samtal
30–60 mínútur, án kostnaðar. Þið segið frá stöðunni; ég segi hreinskilnislega hvort ég sé rétti aðilinn.
Álit
Einn til tveir dagar. Skrifleg sýn á þau tvö eða þrjú atriði sem myndu breyta mestu.
Verkefni eða viðvarandi samstarf
Afmarkað verk með skýrri afurð, eða föst viðvera yfir lengri tíma.
Ykkar megin við borðið
Hugdrif selur engin hugbúnaðarleyfi, tekur ekki að sér innleiðingu og hefur engan vettvang að verja. Það þýðir ekki að ég hafi engar skoðanir á tækni; ég hef starfað í 25 ár við viðskiptahugbúnað og segi ykkur umbúðalaust hvað ég myndi velja í ykkar sporum. Svarið fer ekki eftir því hvað ég fæ greitt fyrir.
Um HugdrifEr stór ákvörðun framundan eða verkefni í sjálfheldu?
Hvort sem þið eruð að undirbúa nýtt kerfisútboð, móta gervigreindarstefnu eða þarfnast óháðs stöðumats á flóknum lausnaarkitektúr, þá kostar fyrsta samtalið ekkert.
Tökum 30–60 mínútna stöðumat og ég segi ykkur hreinskilnislega hvort ég sé rétti aðilinn til að hjálpa og ef ekki, hvaða aðilar væru betur til þess fallnir.
Fáðu ókeypis stöðumat