Þjónusta
Heildarskipulag og verkferli
Skýr mynd af því hvar starfsemin stendur, hvert hún þarf að fara og hvaða ferli tengja þetta tvennt við daglega vinnu.
Á við þegar
- Sameining, samruni eða ný samstæða kallar á eitt verklag úr mörgum, eða hver eining heldur sínu og kerfin eru límd saman
- Umbreytingarverkefni hefur stuðning stjórnenda en byggir ekki á samstæðum arkitektúr
- Ferlin eru til í höfðinu á fólki, á glærum eða ótal ósamrýmanlegum Visio-skjölum
- Samruni eða sameining kallar á eitt samræmt verklag byggt á margs konar afbrigðum af eldra verklagi
- ERP- eða CRM-verkefni er í þann mund að stilla upp ferlum sem enginn hefur samþykkt
- Viðhald á arkitektúr virðist fullt starf sem skilar engu
Vandinn
Flest stærri fyrirtæki og stofnanir eiga þegar ferlakort, arkitektúrmyndir og gagnaskilgreiningar. Vandinn er sjaldnast sá að ekkert hafi verið skjalfest. Hann er sá að skjölin voru gerð vegna verkefnis sem er löngu lokið, þau voru aldrei uppfærð og enginn treystir þeim nógu vel til að byggja ákvörðun á þeim.
Þar með er starfsemin í verstu stöðunni. Hún hefur borgað fyrir vinnuna en getur ekki notað hana. Þegar kemur að næstu stóru ákvörðun er byrjað upp á nýtt, oftast með þrengri tímaramma en síðast.
Hin hliðin á sama peningi er ofskjölun. Lög sem breytast á ólíkum hraða eru sett fram saman, allt niður í verklagslýsingar og þá erfir öll uppbyggingin hraðasta taktinn. Innan átján mánaða er viðhaldið orðið að fullu starfi sem skilar engu.
Hvernig ég vinn þetta
Viðskiptageta á undan ferlum
Kerfi fylgja ekki stefnu, þau fylgja viðskiptagetu, ferlum og gögnum. Ég hjálpa ykkur að skýra og skerpa þessi grundvallaratriði svo ákvarðanir um tæknilausnir og gervigreind standist skoðun eftir fimm ár.
Kort af viðskiptagetu segir hvað starfsemin þarf að geta, óháð því hvernig hún gerir það í dag og óháð því hver gerir það. Þetta er lagið sem breytist hægast og því eina lagið sem hægt er að ákvarða snemma og nýta sem ramma fyrir frekari greiningu.
Fjögur aðskilin lög
Viðskipti, gögn, kerfi og tækni, hvert með sinni framsetningu og sínum breytingahraða. Samhengið á milli þeirra er gert sýnilegt en lögin eru ekki límd saman.
Ferlum lýst með BPMN
Agaður ritháttur sem sýnir flæði og ábyrgð einstakra verka, atburða og ákvarðana. Greiningin fer fram með fólkinu sem vinnur verkin og þekkir ferlin.
Flokkun eftir virðisframlagi
Ekki eiga öll ferli sömu fjárfestingu skilið. Aðgreinandi ferli fá dýpt, almenn ferli fá staðal. Þetta kemur í veg fyrir að ferlavinnan dreifist jafnt yfir það sem skiptir máli og það sem gerir það ekki.
Samræming eftir sameiningu
Þar sem fimm útgáfur af sama ferli eru til þarf að ákveða hver þeirra verður staðallinn og segja skýrt hvað tapast í hverju tilviki. Það er samtal um ferlastýringu, ekki bara skjölun.
Það sem þú færð
- Kort af viðskiptagetu með mati á núverandi stöðu og markstöðu
- Arkitektúrreglur, skrifaðar til að nota í raunverulegum ákvörðunum
- Heildarmynd af arkitektúr í fjórum lögum, sem eru aðskilin eftir sjónarhorni og breytingahraða
- Ferlalýsingar í BPMN á meðvituðum útfærslustigum, flokkaðar eftir virðisframlagi
- Samræmd markferli, ásamt rökstuðningi fyrir þeim breytileika sem eftir stendur
- Bilgreining og vegvísir
Umfang
Álit
Einn til tveir dagar. Lestur á því hvar starfsemin stendur og hvað myndi breyta mestu.
Kortlagning viðskiptagetu og arkitektúrlög
Fjórar til átta vikur, eftir stærð og fjölda hagaðila.
Ferlavinna á afmörkuðu sviði
Sex til tólf vikur fyrir eitt svið, frá greiningu að samþykktum markferlum.
Heildarverkefni
Þrír til sex mánuðir. Markarkitektúr, ferlalýsingar og vegvísir fram að ákvörðun.
Tengt
Ein samþykkt mynd af kjarnaupplýsingum starfseminnar og leið að henni sem krefst þess ekki að öllu sé skipt út.
Lesa meira Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindrekaHeiðarlegt mat á því hvar starfsemin getur óhætt beitt erindrekum og hvað þarf að vera í lagi fyrst.
Lesa meira Kerfisval, útboð og rýniÓháð rýni áður en skrifað er undir, svo kerfisákvarðanir standist til lengri tíma.
Lesa meiraÁ þetta við hjá ykkur?
Hver er staðan hjá ykkur? Fyrsta samtalið kostar ekkert og skilar oftast því að spurningin verður skýrari, hvort sem framhaldið verður að verkefni eða ekki.
Hafa samband