Þjónusta
Kerfisval, útboð og rýni
Óháð rýni áður en skrifað er undir, svo kerfisákvarðanir standist til lengri tíma.
Á við þegar
- Stór kerfisákvörðun eða útboð er framundan, eða verkefni er ekki að skila því sem lofað var
- Greiningin hingað til kemur frá þeim sem bjóða í verkið
- Sérsmíði hefur hlaðist upp og uppfærslur eru orðnar kvíðaefni
- Þið reiðið ykkur á lausn frá hugbúnaðarhúsi en sjáið ekki nógu langt inn í vegvísi hennar
- Verkefni er að tefjast og tæknilegu skýringarnar eru hættar að sannfæra
Val á kerfum og pöllum
Þessi hluti byggir á 25 ára reynslu af Microsoft-pallinum: Dynamics 365, Dataverse og Power Platform. Ég þekki hvar hver hluti nýtist vel og hvar hann hættir að gera það og það sparar mikið að vita það áður en lagt er af stað.
Stærstu spurningarnar eru sjaldnast tæknilegar. Mörkin á milli kerfa ráðast af því hver á hvaða gögn og hver stýrir hvaða ferlum, ekki af leyfum. Leyfamál, þróunarumsýsla og uppsöfnuð sérsmíði ráða svo því hvort uppfærslur verða rútína eða kvíðaefni, en þau ber sjaldnast á góma á kynningarfundum.
Ég þjóna engum söluaðila. Ef annar pallur, sérsmíði eða að gera ekkert er betra svar, segi ég það og sýni rökin. Þegar svarið er Microsoft er það rökstutt, ekki sjálfgefið.
Að byggja á lausn frá hugbúnaðarhúsi
Atvinnugreinalausn frá hugbúnaðarhúsi færir ykkur mikið: sviðsþekkingu, sameiginlega uppfærsluleið og samstarfsaðila sem þekkir ykkar geira. Á móti verður til keðja (Microsoft, hugbúnaðarhúsið og ykkar eigin aðlaganir) sem hreyfist ekki hraðar en hægasti hlekkurinn. Það eru sanngjörn skipti, en þau þarf að meta í heild.
Ég hef setið hinum megin við borðið og borið ábyrgð á vegvísi sem margir viðskiptavinir biðu eftir. Þeir sem fengu mest út úr samstarfinu komu með skýra þarfalýsingu og vissu hvaða ferli greindu þá frá öðrum. Ég hjálpa ykkur að mæta þannig til leiks. Ég vinn líka fyrir hugbúnaðarhús, en aldrei báðum megin í sama máli.
Rýni, innkaup og útboðsstuðningur
Það er algengt að fyrirtæki og stofnanir skuldbindi sig við hönnun sem enginn hefur rýnt nema sá sem lagði hana fram. Óháð rýni metur hönnunina gagnvart viðskiptakröfunum, dregur fram hvar áhættan liggur og setur hana fram á máli sem stýrihópur getur brugðist við.
Í útboðum byrjar vinnan fyrr. Kröfulýsing sem er skrifuð út frá núverandi kerfi, eða á orðfæri eins söluaðila, ræður niðurstöðunni fyrirfram. Ég aðstoða við kröfulýsingar sem lýsa því sem starfsemin þarf að geta og matsviðmið sem greina á milli tilboða á efnislegum forsendum.
Það sem þú færð
- Lausnaarkitektúr sem byggir á viðskiptagetu og ferlum, ekki eiginleikalistum
- Mat á því hvort pallurinn hentar, með tilliti til leyfa og takmarkana
- Yfirlit yfir það sem þið reiðið ykkur á og hversu hratt hver hlekkur hreyfist
- Rýni með niðurstöðum raðað eftir áhættu og skýrum úrbótum
- Kröfulýsingar fyrir útboð sem lýsa þörfum, ekki núverandi kerfi
Umfang
Arkitektúrrýni
Ein til þrjár vikur. Rýni á framlagðri hönnun eða tilboði, með niðurstöðum raðað eftir áhættu.
Pallamat
Þrjár til sex vikur. Kostir, kostnaður og afleiðingar, fram að rökstuddri tillögu.
Útboðsstuðningur
Fylgir tímalínu innkaupanna, frá kröfulýsingu að mati tilboða.
Lausnaarkitektúr
Tveir til fjórir mánuðir, að hönnun sem er tilbúin til framkvæmdar.
Álit með stuttum fyrirvara
Dagar frekar en vikur, þegar ákvörðun eða áfangi er í nánd.
Tengt
Skýr mynd af því hvar starfsemin stendur, hvert hún þarf að fara og hvaða ferli tengja þetta tvennt við daglega vinnu.
Lesa meira Gögn og upplýsingaarkitektúrEin samþykkt mynd af kjarnaupplýsingum starfseminnar og leið að henni sem krefst þess ekki að öllu sé skipt út.
Lesa meira Viðbúnaður fyrir gervigreind og erindrekaHeiðarlegt mat á því hvar starfsemin getur óhætt beitt erindrekum og hvað þarf að vera í lagi fyrst.
Lesa meiraÁ þetta við hjá ykkur?
Hver er staðan hjá ykkur? Fyrsta samtalið kostar ekkert og skilar oftast því að spurningin verður skýrari, hvort sem framhaldið verður að verkefni eða ekki.
Hafa samband